LAUGARDAL 9. NÓVEMBER 2024

Leikarnir fara fram laugardaginn 9. nóvember bæði í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Íþróttaálfurinn mætir á svæðið og stýrir deginum. Allir þátttakendur fá brúsa merktan leikunum og boðið verður upp á pitsuveislu í hádeginu þar sem einnig verða kynningar á öðrum íþróttagreinum.

Öll fjölskyldan er velkomin með. 

Þáttökugjald á leikana 1.500 kr,  skráning fer fram hér.


Leikarnir eru samstarfsverkefni og þeir aðilar sem koma að framkvæmd þess eru: Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Knattspyrnusamband Íslands, Handboltasamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands, Fimleikasamband Íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra.