Íslandsleikarnir á Selfossi 2025

Íslandsleikarnir á Selfossi 2025

Íslandsleikarnir voru haldnir á Selfossi um síðustu helgi. Tæplega sjötíu keppendur voru mættir til leiks en hægt var að taka þátt í keppni í fimm íþróttagreinum, frjálsum, fimleikum, fótbolta, handbolta og körfubolta. Fyrir utan keppnina þá var hægt að vera með í opnum æfingum í öllum þessum fimm íþróttagreinum.

Á föstudeginum voru leikarnir settir og í kjölfarið farið í ýmsa leiki í íþróttasal Vallaskóla en þar var einnig gist. Áhersla var lögð á að bjóða upp á ýmsa afþreyingu samhliða íþróttakeppninni. VÆP strákarnir mættu við gífurleg fagnaðarlæti þátttakenda og í framhaldi af tónleikum þeirra var pizza- og sundlaugaparty í Sundhöll Selfoss.

Til þess að svona viðburður gangi upp þá þurfa margir að koma að bæði sjálfboðaliðar og styrktaraðilar. Viljum við hér með þakka sérstaklega Sveitarfélaginu Árborg fyrir að taka svona vel á móti okkar eins og raun bar vitni. Allt starfsfólk íþróttamannvirkja og skóla fá sérstakar þakkir fyrir einstakt viðmót alla helgina. Ungmennafélag Selfoss og Selfoss karfa sáu um íþróttaþáttinn í leikunum og fá þau sérstakar þakkir fyrir frábæra framkvæmd bæði á keppninni og opnu æfingunum.

Styrktaraðilar mótsins fá kærar þakkir fyrir þeira framlag til leikanna sem við metum mikils: Dominos, Innes, Bananar, MS.

Sjá einnig frétt frá UMFÍ