Allir með leikarnir

Allir með leikarnir

Allir með leikarnir er íþróttahátíð fyrir börn sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi. Þar fá  þátttakendur að prófa fjölda íþróttagreina með það að markmið að kynnast íþrótt sem þau hugsanlega mundu vilja æfa. Leikarnir eru haldnir einu sinni á ári í Laugardalshöll um mánaðarmótin október/nóvember.

Leikarnir eru ætlaðir fyrir börn á grunnskólaaldri þ.e. 6 – 16 ára.

Áhersla er lögð á leik og gleði og eru leikarnir eitt stórt íþróttapartý.

Myndir frá leikunum 2025

Myndir frá leikunum 2024