1[1]

Opnað fyrir skráningu á Íslandsleika Allir með

Íslandsleikarnir eru mót fyrir börn og ungmenni sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eru með fötlun og/eða stuðningsþarfir.

Á Íslandsleikunum er  keppt í þremur íþróttakreinum fótbolta, körfubolta, handbolta. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum þar sem hægt verður að prófa þær.

Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig og verða þá settír í lið. Leikarnir eru fyrir iðkendur á öllum aldri.

Gisting er í boði í skólastofum föstudags- og eða laugardagskvöld.

Skráning fer fram í gegnum Abler og má finna hér