Allir með á Selfossi!

Við undirrituð höfum gælt við það síðan árið 2011 að bjóða upp á íþróttir fyrir börn með sérþarfir. Snemma árs 2023 kom tækifærið að fara af stað með slíkt starf þegar, Allir með samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF var hrint af stað. Í byrjun desember 2023 fórum við á fund með deildarstjóra frístundaþjónustu Árborgar.

Á þeim fundi ræddum við tíma í íþróttahúsi og hvernig við myndum hugsa okkur að byrja. Ákváðum við að drífa okkur af stað og stefndum að því að byrja 14.janúar á nýju ári og settum okkur það markmið að byrja þó það yrðu bara 2 börn sem myndu skrá sig. Við sóttum um styrk í sjóðinn Allir með og fengum styrk upp á 1.000.000.- Við útbjuggum auglýsingu sem velferðarsvið Árborgar sá um að senda á foreldra og forráðamenn allra barna á grunnskólaaldri, auk elstu barna í leikskólum, með skilgreinda fötlun. Strax komu skráningar framar okkar vonum. Þann 14.janúar mættu 17 börn á aldrinum 5-14 ára. Þörfin er greinilega mikil.

Í fyrsta tímanum vorum við aðallega að sjá og kynnast börnunum, sjá hvar þau standa í færni og áhuga. Við fengum til liðs við okkur Lindu Ósk Þorvaldsdóttur iðju þjálfa og fimleikaþjálfara sem einnig er með mikla reynslu í vinnu með fötluð börn. Hún skipulagði tímann með upphafi miðju og enda.


Okkar markmið eru:

  • Að finna styrkleika og áhuga barnsins
  • Að gefa barninu tækifæri að æfa þá íþrótt sem það hefur áhuga á
  • Að meta stuðningsþörf barnsins og veita því þann stuðning sem þarf
  • Að veita barninu tækifæri til að æfa með sínum jafnöldrum með réttum stuðningi
    Okkar leiðir að markmiðum er:
  • Kynnast barninu og fá foreldra/forráðamenn barnsins til að aðstoða okkur við að finna styrkleika og áhuga barnsins
  • Hafa fjölbreyttar æfingar, fá til liðs við okkur gestaþjálfara UMFS til að koma inn og vera með æfingar sem börnin hafa áhuga á að prófa.
  • Meta stuðningsþörfina með foreldrum/forráðamönnum og aðstoða þau við að auglýsa eftir liðveislu til að fylgja barninu á æfingar eða auka við tíma liðveislu ef barnið er með slíka þjónustu hjá sveitarfélaginu.
  • Með aðstoð UMFS, foreldra/forráðamanna og sveitarfélagsins aðstoða við það að barnið fái þann stuðning sem það þarf til að geta æft með jafnöldrum þá íþrótt sem barnið vill æfa.