Hjólastólakörfubolti í Kringlunni laugardaginn 15. febrúar!

Kynning verður á verkefninu Allir með í Kringlunni á laugardag á milli klukan 14:00 – 15:00. Sérstök áhersla verður á kynningu á hjólastólakörfubolta sem er að fara af stað fyrir börn með sérþarfir. Settur verður upp körfuboltavöllur og leikið 2 á 2. Áhorfendur geta fylgst með af tveimur hæðum. Gestir fá að prófa hjólastólana og taka… Continue reading Hjólastólakörfubolti í Kringlunni laugardaginn 15. febrúar!

Íslandsleikarnir 29.-30. mars 2025

Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi dagana 29. -30. mars 2025. Leikarnir eru fyrir þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eða eru með stuðningsþarfir. Á leikunum er keppt í fimm íþróttakreinum fótbolta, körfubolta, handbolta, fimleikum og frjálsum. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum sem öllum er frjálst að mæta í. Hægt… Continue reading Íslandsleikarnir 29.-30. mars 2025

Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi helgina 29-30 mars

Íslandsleikarnir munu fara fram á Selfossi helgina 29.-30. mars 2025. Leikarnir voru haldnir í fyrsta sinn árið 2024 við mikla lukku. Leikarnir fóru fram á Akureyri um miðjan mars þar sem keppt var í körfubolta og fótbolta. Bæði Special Olympics körfuboltahópur Hauka og fótboltahópur frá Stjörnunni/Ösp ferðuðust norður og tóku þátt í Íslandsleikunum með norðanfólki.… Continue reading Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi helgina 29-30 mars

Hönnun Gunnars Karls prýðir hjólastólavagn Allir með

„Vagninn með þessari hönnun mun fara á fleygiferð um landið eftir áramót og vekja mikla athygli. Hann á eftir að gleðja börnin sem munu nota hjólastólana en sýna á sama tíma að við þurfum að gera betur í þessum málaflokki,“ segir Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, verkefnis sem hefur það að markmiði að fjölga þátttakendum… Continue reading Hönnun Gunnars Karls prýðir hjólastólavagn Allir með

Fyrstu íþróttahjólastólarnir komnir í hús

Allir með verkefnið hefur fest kaup á 10 íþróttahjólastólum sem ætlaðir eru fyrir börn á aldrinum 7 – 14 ára. Boðið verður upp á hjólastólakörfubolta fyrir þennan aldur fljótlega eftir áramót. Stólarnir verða í lokaðri kerru sem gefur okkur tækifæri á að bjóða upp á  æfingar á fleirum en einum stað. Marel er að hjálpa okkur… Continue reading Fyrstu íþróttahjólastólarnir komnir í hús

3. desember, Alþjóðlegur dagur fatlaðra

Alþjóðadagur fatlaðs fólks er haldinn um heim allan þann 3. desember. Hann hefur verið haldinn 3. desember ár hvert frá því að Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir alþjóðlegu ári fatlaðs fólks árið 1981. Markmið alþjóðlegs dags fatlaðra er að auka skilning á aðstæðum fólks með fötlun, baráttunni fyrir réttindum þess og fullri þátttöku í samfélaginu til… Continue reading 3. desember, Alþjóðlegur dagur fatlaðra

Klifurnámskeið fyrir blind, sjónskert eða hreyfihömluð börn

Klifurfélag Reykjavíkur er að fara af stað með klifurnámskeið fyrir blind, sjónskert eða hreyfihömluð börn. Markmið námskeiðsins:Markmið verkefnisins er að kynna klifuríþróttina fyrir fjölbreyttari hóp barna og ungmenna og auka þátttöku fatlaðra barna í íþróttum. Hver er markhópurinn:Börn í 6. – 10. bekk í grunnskóla sem eru blind, sjónskert eða með hreyfihömlun og eru án viðbótarfatlana.… Continue reading Klifurnámskeið fyrir blind, sjónskert eða hreyfihömluð börn

Allir með leikarnir slóu í gegn!

Allir með leikarnir fóru fram í fyrsta sinn síðastliðinn laugardag. Það voru rúmlega 115 krakkar sem mættu til leiks þar sem farið var í fótbolta, körfubolta, handbolta, frjálsar íþróttir og fimleika. Áætlað er að Allir með leikarnir verði að árlegum viðburði þar sem þeir verða eitt af þremur stórum viðburðum sem krakkar geta látið sér… Continue reading Allir með leikarnir slóu í gegn!

Einungis 3 dagar í Allir með leikana

Undirbúningur fyrir Allir með leikana eru nú í fullum gangi þar sem leikarnir fara fram næsta laugardag. Íþróttaálfurinn ásamt Sollu Stirðu og Höllu Hrekkjusvín mæta hress og þar sem þau fara á milli íþróttagreina og hjálpa til við að stýra deginum. Ein af Paralympic förunum okkar mætir á svæðið en það er hún Ingeborg Eide… Continue reading Einungis 3 dagar í Allir með leikana

Skráning í fullum gangi fyrir Allir Með Leikana 2024

Laugardaginn 9. nóvember næstkomandi fara fram Allir Með Leikarnir í laugardalnum. Leikarnir fara fram bæði í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Leikarnir eru hluti af verkefninu Allir með, með það að markmiði að fjölga tækifærum barna með fatlanir til íþróttaiðkunar. Íþróttaálfurinn mætir á svæðið þar sem hann stýrir upphitun og sér svo um að halda uppi… Continue reading Skráning í fullum gangi fyrir Allir Með Leikana 2024