Allir með verkefnið hlaut samfélagsstyrk Krónunnar

Stefna Krónunnar er að styrkja verkefni sem hvetja til Hreyfinga og hollustu barna og/eða uppbyggingar í samfélaginu. Krónan veitir árlega styrki í nærumhverfi verslana og í ár var Allir með verkefnið eitt af þeim verkefnum sem hlaut styrk. Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggj ára verkefni sem… Continue reading Allir með verkefnið hlaut samfélagsstyrk Krónunnar

Þrjú börn mættu á fyrstu æfinguna árið 2018, sá fjöldi hefur rúmlega tífaldast

Special Olympics körfuboltalið Hauka er á mikilli siglingu og í dag mæta Haukar með allt að fjögur lið á mót að keppa á móti börnum sem eru ekki með fötlun. Hópurinn fékk góða umfjöllun á vísi þar sem sagt er frá því hvernig verkefnið allt byrjaði og hvernig gengur í dag. Það eru sex ár… Continue reading Þrjú börn mættu á fyrstu æfinguna árið 2018, sá fjöldi hefur rúmlega tífaldast

Íslandsleikar 2024 á Akureyri

Helgina 16. og 17. mars voru svokallaðir Íslandsleikar haldnir á Akureyri þar sem börn með sérþarfir koma frá höfuðborgarsvæðinu í keppnisferð og keppa í blönduðum liðum í Íþróttahöllinni. Auk þess voru opnar æfingar í fótbolta og körfubolta í Íþróttahöllinni fyrir börn með sérþarfir.

Allir með af stað í Árborg

„Ég hvet alla þjálfara til að taka þessu verkefni með opnum hug, því sigrar barna með fötlun eru gríðarlega stórir,“ sagði Þórdís Bjarnadóttir frá Íþróttafélaginu Suðra við undirritun samstarfssamnings á vegum Hvatasjóðs verkefnisins Allir með við Ungmennafélag Selfoss og Íþróttafélagið Suðra.

Allir með á Selfossi!

Við undirrituð höfum gælt við það síðan árið 2011 að bjóða upp á íþróttir fyrir börn með sérþarfir. Snemma árs 2023 kom tækifærið að fara af stað með slíkt starf þegar, Allir með samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF var hrint af stað. Í byrjun desember 2023 fórum við á fund með deildarstjóra frístundaþjónustu Árborgar.