Opnað fyrir skráningu á Íslandsleika Allir með

Íslandsleikarnir eru mót fyrir börn og ungmenni sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eru með fötlun og/eða stuðningsþarfir. Á Íslandsleikunum er  keppt í þremur íþróttakreinum fótbolta, körfubolta, handbolta. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum þar sem hægt verður að prófa þær. Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig… Continue reading Opnað fyrir skráningu á Íslandsleika Allir með

Allir með Listleikarnir

Allir með Listleikarnir verða haldnir 25. janúar! Aðeins 50 pláss standa til boða svo ekki bíða með að skrá þig Hægt er að skrá sig með því að skanna QR kóðann eða fylgja hlekknum hér

Hjólastólakarfa ÍR hefur annað ár!

Hjólastólakarfan hjá ÍR er að hefja sitt annað ár og vilja fjölga í hópnum. Við hvetjum börn og ungmenni með skerta hreyfigetu til að kíkja á þessar skemmtilegu æfingar hjá þeim. Æfingar eru á sunnudögum kl. 15:00-16:00 í íþróttahúsi ÍR við Skógarsel 12.

Íslandsleikar 2026

Íslandsleikarnir verða haldnir í Keflavík 28.-29. mars 2026. Þetta verður í þriðja sinn sem Allir með halda Íslandsleika en áður hafa þeir verið á Akureyri og Selfossi. Fleiri upplýsingar koma þegar nær dregur.

Íþróttanámskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni í sumar

Allir með, Æfingastöðin og ÍR munu standa fyrir skemmtilegu íþróttanámskeiði í sumar fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni 14. – 18. júlí í Skógarseli. Þjálfarar námskeiðsins eru Arna Sigríður Albertsdóttir, afrekskona í handahjólreiðum og skíðum, Hákon Atli Bjarkason, afreksmaður í borðtennis og Kjalar Þór Jóhannsson körfuboltaþjálfari. Námskeið fyrir 10 ára og yngri eru milli kl. 9:00-12:00Námskeið… Continue reading Íþróttanámskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni í sumar

Fjárframlög til íþrótta fatlaðra skila sér margfalt til baka

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar benda til að hvert framlag til íþrótta fatlaðra (para-íþróttir) rúmlega fjórfaldast. Rannsóknin var gerð á vegum bresku samtakanna Activity Alliance, sem vinna að því að tryggja jafnrétti fatlaðs fólks til þátttöku í íþróttum og hreyfingu. Málið var skoðað á síðasta ári og er þar gerð tilraun til að meta samfélagslegt virði þess… Continue reading Fjárframlög til íþrótta fatlaðra skila sér margfalt til baka

Íslandsleikarnir á Selfossi 2025

Íslandsleikarnir voru haldnir á Selfossi um síðustu helgi. Tæplega sjötíu keppendur voru mættir til leiks en hægt var að taka þátt í keppni í fimm íþróttagreinum, frjálsum, fimleikum, fótbolta, handbolta og körfubolta. Fyrir utan keppnina þá var hægt að vera með í opnum æfingum í öllum þessum fimm íþróttagreinum. Á föstudeginum voru leikarnir settir og… Continue reading Íslandsleikarnir á Selfossi 2025

Skráning á Íslandsleikana er í fullum gangi

Nú er skráning á leikana á Selfossi í fullum gangi. Það er um að gera að skrá sig sem fyrst en skráningu lýkur 25. mars. Íslandsleikarnir er íþrótthahelgi fyrir einstaklinga sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi og/eða eru með stuðningsþarfir. Á leikunum verða fimm íþróttagreinar í boði: fótbolti, körfubolti, handbolti, fimleikar og frjálsar.… Continue reading Skráning á Íslandsleikana er í fullum gangi

Hjólastólakarfa hjá ÍR og Fjölni

Körfuknattleiks deildir Fjölnis og ÍR bjóða uppá hjólastóakörfubolta fyrir börn á grunnskólaaldri með sérþarfir! Æft er á sunnudögum kl 11:00 í Egilshöll og kl 15:30 í Skógarseli hjá ÍR. Allir velkomnir.

Skráning fyrir Íslandsleikana opnar á morgunn!

Helgina 29.-30. mars fara fram Íslandsleikarnir 2025 á Selfossi! Leikarnir eru fyrir þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eða eru með stuðningsþarfir. Á leikunum er keppt í fimm íþróttakreinum fótbolta, körfubolta, handbolta, fimleikum og frjálsum. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum sem öllum er frjálst að mæta í. Hægt er… Continue reading Skráning fyrir Íslandsleikana opnar á morgunn!